Leita í fréttum mbl.is
Embla

Taumlaus eyðsla og stjórnleysi Grikkjanna.

Í Grikklandi hafa sósíalistar stjórnað öllu eftir uppskrift marxistmanns, - (það er að segja, með því að vera á "ríkis-fylliríi".) Helmingur, eða um 50% af öllu launafólki er á launum hjá ríki og sveitarfélögum. Þá er milli 10 og 20 prósent atvinnuleysi (30% meðal yngra fólks) og afgangurinn rúm 30%, eða um þriðjungur af þjóðinni vinnur arðbær störf og þessi þriðjungur af þjóðinni, á með skattagreiðslum sínum, að halda uppi hinum 70 prósentunum af þjóðinni. Það sér hver maður að svona rugl fær ekki staðist.

 

Kona ein frá Grikklandi, en flutt burt þaðan, sagði að það væri hreint skelfilegt að koma til Grikklands. Sagði hún að; - "þar nennti bókstaflega enginn að vinna neitt". Menn vildu bara sóla sig á ströndinni eða við sundlaugina og vildu fá alla hluti frá ríkinu fyrir ekki neitt. En enginn vildi borga skatta.

 

Dæmi um það er, að þeir sem hafa sundlaug við hús sín í Grikklandi þurfa að gefa það upp á skattaskýrslu og borga aukalega skatt. Í Aþenu voru 300 sundlaugar á skattaskýrslum. Einhverjum fannst að þetta gæti varla staðist svo það voru teknar loftmyndir og sundlaugar taldar. Þær reyndust vera 17.000.

 

Helmingur landsmanna þiggur laun frá ríkinu og landið er gjörsamlega á hausnum. Í stað þess að skera niður eyðsluna, segja upp og reka burt helminginn af þessu fólki sem er á launum hjá ríkinu, þá er lausnin ávallt hin sama, en það er að eyða meiru af fé almennings, taka síðan erlend lán, síðan meiri erlend lán og ennþá meiri erlend lán, þótt það sé vonlaust að geta endurgreitt. Og Evrópu ríkin taka svo undir alla vitleysuna með því að veita ofurlán til viðbótar til þess að "bjarga" Grikklandi. Bjarga hverju ? Bjarga letingjum sem nenna ekki að vinna framleiðslustörf, en með því að auka iðnað og framleiðslu gætu þeir unnið þjóðina út úr vandanum ?

 

Er þá nokkur furða þótt þótt öðrum ofbjóði og vilji að ESB-ríkin taki yfir fjármálastjórn Grikklands. En Grikkirnir bregðast reiðir við ef það á að reka þá frá sólarströndinni til þess að fara að vinna.



mbl.is Grikkir ósáttir við tillögur Þjóðverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband